Fögnum Alþjóðlega Downs-deginum 21. mars
skrifað 13. mar 2018

Miðvikudaginn 21. mars fögnum við Alþjóðlega Downs-deginum með samkomu í veislusal Þróttar, Laugardal, milli kl. 17 og 19.
Sameinuðu þjóðirnar lýstu því formlega yfir árið 2011 að 21. mars væri alþjóðadagur Downs-heilkennis og með það að markmiði að auka vitund og minnka aðgreiningu. Dagsetningin er táknræn að því leiti að hún vísar til þess að Downs-heilkenni er orsakað af auka litning í litningi 21, þ.e. 3 eintök af litning 21 - 21.03.
Að venju munum við halda uppá daginn með samveru og gleði. Frábært tilefni til að hittast og gleðjast saman. Friðrik Dór mun gleðja okkur með nokkrum lögum.
Hlökkum til að sjá sem flesta - allir velkomnir
Félag áhugafólks um Downs-heilkenni
Fleiri fréttir
-
20. nóv 2019Árlegt jólaball félagsins
-
31. okt 2019Allir í dans!
-
31. okt 2019Bólusetningar vegna inflúensu
-
21. maí 2019Aðalfundur 2019
-
07. mar 2016Alþjóðlegi Downs-dagurinn 21. mars
-
25. jan 2019Umsögn Downs-félagsins um frumvarp til laga um þungunarrof
-
22. nóv 2018Jólaball Downs-félagsins
-
29. okt 2018Yfirlýsing vegna ummæla yfirlæknis fæðingarþjónustu Landspítala-Háskólasjúkrahúss
-
12. okt 2018Málþroski og talþjálfun
-
09. ágú 2018Áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþons - Taktu þátt