|
Heilsa
HeilsugæslaEinstaklingar með Downs-heilkenni hafa aukna líkur á því að fá ýmsa kvilla og sjúkdóma. Vegna þessa er nauðsynlegt að vera sérstaklega vel á verði þegar kemur að heilsugæslu. Aukin tíðni vissra sjúkdóma getur einnig haft áhrif á greiningarferli og því nauðsynlegt fyrir bæði foreldra og fagfólk að vera upplýst um þessa sérstöðu. Ekki hafa verið gefnar út sérstakar leiðbeiningar fyrir heilsugæsluna á Íslandi en foreldrar hafa töluvert stuðst við leiðbeiningar sem gefnar eru út í Bandaríkjunum, Health Care Guidelines for Individuals with Down Syndrome: 1999 Revision. Til eru erlendar töflur sem hægt er að styðjast við, upphaflega teknar úr Down Syndrome Quarterly: Fæðing til 12 ára 13 ára og eldri Vöxtur og vaxtartöflur Í ungbarnaeftirliti hér á landi eru notaðar vaxtartöflur til þess að fylgjast með vaxtarfrávikum hjá börnum. Vaxtarfrávik geta bent til ýmiskonar kvilla svo sem skjaldkirtilstruflana eða vannæringu. Vaxtartöflur sem eru notaðar hér á landi koma frá Svíþjóð (sjá NetDoktor.is - Vöxtur og vaxtartruflanir) og byggja á vaxtartölum ungbarna í Svíþjóð yfir margra ára skeið. Börn með Downs-heilkenni vaxa yfirleitt hægar en önnur börn og henta því þessar vaxtatöflur þeim engan veginn. Til eru vaxtatöflur sem henta mun betur (sjá http://www.growthcharts.com). Þessar töflur eru byggðar á vaxtartölum barna með Downs-heilkenni í Bandaríkjunum. Tannheilsa Einstaklingar með Downs-heilkenni eiga oft við ýmis tannheilsuvandamál að etja. Á tannheilsuvefnum er fjallað sérstaklega um einstaklinga með Downs-heilkenni Tannheilsa.is - Downs heilkenni Sími: 588 9390 Netfang: downs@downs.is |
|||||