Lagalegar upplýsingar Síðast breytt: 07.12.2011 ![]() Börnin okkar |
Velkomin...
Velkomin á vef Félags áhugafólks um Downs-heilkenni. Vefurinn er ætlaður foreldrum, aðstandendum og almenningi. Tilgangur hans er að safna saman á einn stað þeim upplýsingum sem tengjast Downs-heilkenni og félaginu. Á vefnum er að finna ýmsan fróðleik, sögur og myndir sem nýtast ætti bæði aðstandendum og öðrum áhugasömum. Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða ef það er eitthvað sem þið viljið koma á framfæri þá endilega sendið póst á vefstjóra vefsins. Smjörgras til styrktar börnum með Downs heilkenni Fjórða
silfurskart Leonard lítur nú dagsins ljós. Að
þessu sinni er smjörgras fyrirmynd Eggerts Péturssonar
listmálara og Sifjar Jakobsdóttur
gullsmiðs og hönnuðar.Hálsmenið 12.500 kr, eyrnalokkar 9.500 kr eða settið á 19.800 kr. Smjörgrasið fæst í verslunum Leonard í Kringlunni, Smáralind, Lækjargötu og Leifsstöð. Félagið þakkar eigendum og starfsfólki Leonard fyrir þetta frábæra framlag og er stuðningurinn ómetanlegur fyrir félagið. Styrkinn mun félagið nýta í tómstundastarf fyrir börn með Downs-heilkenni. Nánari upplýsingar um skartgripina má nálgast
á leonard.is Sími: 588 9390 Netfang: downs@downs.is |
Útgefið
efni: |
||||||||||