|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Tenglar
Landsamtökin Þroskahjálp hafa
komið sér upp góðri síðu með íslenskum tenglum. Önnur
góð íslensk síða er hjá Neistanum,
styrktarfélag hjartveikra barna, hana er að finna á
www.neistinn.is. Vefsetur
í fötlunarfræðum er síða sem er starfrækt
í tengslum við nám í fötlunarfræðum.
Til eru nokkrar íslenskar síður einstaklinga með
Downs-heilkenni. Á barnlandi og barnaneti er að finna: Finnboga
Örn, Sigrúnu Berglind,
Júlíus Gabríel, Daníel
Smára, Birtu Rós,
Sögu og Helgu.
Aaron er líka með sína eigin heimasíðu: http://www.aaronss.net.
Vefsíðan www.tmt.is er skemmtileg
síða sem inniheldur ýmsar upplýsingar um TMT.
Á síðunni er hægt að finna margar táknmyndir
þar sem táknin eru sýnd ásamt hreyfingum. Síðan
er einkum ætluð til þess að styðja og efla fjölskyldur
barna sem eru að byrja að nota TMT. Önnur skemmtileg vefsíða
er Eins og þú
ert!. Eins og þú ert er síða sem var hluti
af lokaverkefni þriggja nemenda til B.A. prófs á Þroskaþjálfabraut
í Kennaraháskóla Íslands. Á síðunni
má finna viðtöl og sögur fólks sem er með
Downs-heilkenni og er hún hugsuð sem tækifæri fyrir
fólk að kynnast því hvernig er að vera með
Downs-heilkenni. Á vefsíðunni Tumi
og táknin er hægt er að finna einfalda prufu útgáfu
af íslenskum tölvuleik sem kennir tákn með tali.
Leikurinn samanstendur af 45 litlum þrautum og 255 táknum.
Vefsíðan "Down Syndrome
Sites on the Internet" sem Dr. Len Leshin hefur haldið til haga
inniheldur mjög gott yfirlit yfir hvað hægt er að finna á Internetinu
og er mjög góður byrjunarpunktur fyrir fróðleiksfúsa. Vefsetur hans
Len á www.ds-health.com inniheldur
einnig heilmikið af upplýsingum um Downs-heilkenni. Fyrir utan að vera
barnalæknir er Len faðir barns með Downs-heilkenni og er einstaklega
fróður þegar kemur að Downs-heilkenni.
Vefsíðan
www.downsyndrome.com er einnig
ágætur byrjunarpunktur en hún inniheldur fjölmarga tengla inn á vefsetur
sem fjalla um Downs-heilkenni. Vefsíða NDSS
(National Down Syndrome Society) innheldur ýmsar upplýsingar
svo sem síðan spurningar og svör (Q&A) og einnig
er tenglasíðan þeirra vegleg. Tenglasíða
IRSC (Internet Resources
for Special Children) inniheldur fullt af tenglum ekki bara um Downs-heilkenni
heldur um ýmsar fatlanir og ýmislegt sem tengist fötlunum.
Setrið The Down Syndrome WWW Page
var ein af fyrstu góðu síðunum sem finna var hægt á netinu og er búin
að vera til staðar síðan 1995. Annað vefsetur sem vert er að minnast
á er Riverbend DS
Group, en þetta setur inniheldur mikið af upplýsingum og góðar greinar
um ýmislegt sem viðkemur Downs-heilkenni.
Sarah Duffen Centre er með gott vefsetur sem þeir kalla DownsNet.
Síðurnar innihalda töluvert af góðum greinum um allskonar efni svo sem:
talþjálfun, lestrarkennslu og unglingsárin. Þarna má finna margar greinar
eftir prófessor Sue Buckley sem hefur verið aðaldriffjöðurinn í Sarah
Duffen Centre.
"Love and Learning" er
áhugaverð vefsíða. Hún er fjallar um aðferð sem foreldrar stelpu með
Downs-heilkenni þróuðu til þess að kenna henni að tala, lesa og skrifa
með góðum árangri. Þau hafa gefið út ýmiskonar efni bæði í bók, hljóð-
og myndböndum sem margir hafa mælt með. Þeir sem hafa áhuga
á Jóga er bent á skemmtilega síðu www.specialyoga.com.
Á síðunni er fjallað um Jóga fyrir sérstök
börn.
Aðdáendaklúbbur Chris Burke sem lék Corky í sjónvarpsþáttunum Gangur
lífsins (Life goes on) er með síðu á slóðinni www.welcome.to/chrisburke.
Þar má finna ýmsar upplýsingar um kappan hvað hann hefur haft fyrir
stafni, upplýsingar um hljómsveitina hans og fleira.
Önnur síða sem vert er að nefna er síðan "What's
Up With Downs? (The Kehler family)". Þessi síða innheldur töluvert
af upplýsingum ásamt tilvísunum í aðra staði á netinu.
Richard Bailey er ljósmyndari sem á stelpu með Downs-heilkenni.
Hann hefur undanfarin tvö ár gefið út falleg
dagatöl með myndum af einstaklingum með Downs-heilkenni.
Dagatal fyrir árið 2006 má finna á síðunni
www.ds2006.com.
Félag áhugafólks um Downs-heilkenni Háaleitisbraut
13 108 Reykjavík
Sími: 588 9390 Netfang: downs@downs.is
|
|
|
 |
 |
 |
 |
|