Netverk
 - Á Íslandi
 Tákn međ tali
 - Orðalisti
 - TMT
 - Æfingar
 Ýmsar greinar
 - Fyrirlestur um
   netvinnu
 - Markviss
   málörvun
 - Opið hús hjá
   Iréne í Karlstad
 - Viðtal við Iréne
  Snemmtćk íhlutun

Snemmtæk íhlutun (e. early intervention) er það kallað þegar reynt er á markvissan hátt að hafa áhrif á þroskaframvindu barna með frávik í þroska eins snemma og unnt er á lífsleiðinni.
Tímabilið frá fæðingu til 6 ára aldurs er það tímabil í lífi barna sem snemmtæk íhlutun er yfirleitt miðuð við. Aðal áhersla er lögð á að íhlutunin hefjist sem fyrst eftir að frávik í þroska greinist.
Börn með Downs-heilkenni greinast yfirhöfuð mjög fljótlega eftir fæðingu og er talið að næmiskeið þeirra nái yfir sama tímabil og annarra barna. Því er mjög mikilvægt að hefja markvissa örvun fljótlega eftir fæðingu.
Algengt er að fjölskyldan tengist með beinum eða óbeinum hætti íhlutun vegna þroskafrávika barns. Ráðgjöf fagaðila, til foreldra barna með Downs-heilkenni, um markvissa örvun er mjög mikilvægur þáttur til að ná fram hámarks hæfni sem einstaklingurinn býr yfir.




Félag áhugafólks um Downs-heilkenni • Háaleitisbraut 13 • 108 Reykjavík
Sími: 588 9390 • Netfang: downs@downs.is

Web Counter by TrafficFile.com