Börnin
okkar
Börnin
okkar er bæklingur sem gefin er út af hópi foreldra
barna með Downs-heilkenni. Í bæklingnum er að
finna myndir og kynningu á 34 íslenskum börnum
sem öll eiga það sameiginlegt að hafa auka litning
í frumum líkamans.
Með útgáfu þessa bæklings er reynt að
styðja foreldra sem eignast barn með Downs-heilkenni, til
að takast á við sorgina og óttan sem oft fylgir
því að eignast barn með fötlun. Myndirnar
tala best sínu máli og á þann hátt
er reynt að sýna að börn með Downs-heilkenni
eru fyrst og fremst börn, með sömu þarfir, langanir
og tilfinningar og önnur börn.
Mestu gleðistundirnar í lífinu eru án
efa að
fylgjast með barni sínu feta fótspor lífsins,
sama
hvernig vegurinn kann að liggja.
Kilja, 32 blaðsíður og 15 x 21 cm. Bæklingurinn
er ókeypis og hægt er að nálgast hann á
skrifstofu félagsins, Háaleitisbraut 13.
Félag
áhugafólks um Downs-heilkenni er með til sölu
myndband sem fjallar um líf og störf barna og ungs fólks
með Downs-heilkenni á Íslandi. Í myndinn
er fylgst með lífi fimm einstaklinga á aldrinum
1-25 ára.
Fyrri hluti myndarinnar fjallar um þau Kötlu Sif 1. árs,
Örnu Dís 4 ára og Daníel 8 ára.
Síðari hlutinn fjallar um Hlyn 16 ára og Mörtu
Jane 25 ára.
Myndin er eftir Elínu Hirst, fréttastjóra Sjónvarpsins,
en henni til aðstoðar voru Þorvarður Björgúlfsson
myndatökumaður og Steindór Steindórsson klippari.
Bjarni Hinriksson og Varlgerður Baldursdóttir, 6 ára,
gerðu grafík.
Myndin er tilvalin til fræðslu í skólum þar
sem námsefnið "Lífsleikni" er á námsskrá.
Einnig má nota myndbandið í félagsmiðstöðum,
jafningafræðslu, fermingafræðslu, siðfræði
og lengi mætti telja.
Meira >>
Bók um
Downs-heilkenni
Félag
áhugafólks um Downs-heilkenni og Pjaxi ehf. hafa í
sameiningu gefið út sænsku bókina Downs
syndrom sem út kom í Svíþjóð
árið 1996.
Höfundar hennar eru: Göran Annerén barnalæknir,
erfðafræðingur og yfirlæknir á deild
fyrir klíníska erfðafræði við Akademíska
barnaspítalann í Uppsölum, Irene Johansson prófessor
í uppeldisfræði og hljóðfræði
við Háskólann í Karlstad og Inga-Lill Kristjansson
sálfræðingur og sálgreinir.
Meira >>
Málþjálfun
í daglegu lífi - Iréne Johansson
Myndband
með kynningu á hugmyndafræði og málþjálfunarefni
Karlstadlíkansins. Á myndbandi þessu eru viðtöl
við Iréne Johansson og foreldra varðandi þjálfun
einstaklinga með frávik í mál- og tjáskiptum.
Einnig sýnir myndbandið börn að leik með
málþjálfunarefnið sem Iréne hefur
þróað út frá rannsóknum um
máltöku einstaklinga með málörðuleika
síðastliðin 25 ár.
Félag áhugafólks um Downs-heilkenni hefur staðið
fyrir kynningu á þessu efni undanfarin ár.
Myndbandið er sænskt með íslenskum texta. Hægt
er að fá myndbandið að láni á skrifstofu
félagsins, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík.
Málörvunaraðferð
Iréne Johansson
og börn með Downs-heilkenni

Svo
skrýtið sem það er, á tímum endalausra
uppgötvana, aðferða og kenninga, þá finnst
manni ekki sem nútíminn ríki þegar um er
að ræða börn með Downs-heilkenni. Þrátt
fyrir að vitað er um seinkaðan málþroska,
þá á bara að koma í ljós hvort
barnið muni tala! Kannast einhver við þetta?
Ég var sannfærð um það frá fæðingu
barns míns, að ég skyldi ekki leyfa tímanum
að líða án þess að gera nokkuð,
jafnvel á fyrstu mánuðunum. Við skyldum njóta
þess að eiga hvort annað.
Meira >>